Þjónustubygging í Dyrhólaey
2015
Snyrtingar og nestisaðstaða fyrir ferðamenn í Lágey Dyrhólaeyjar. Húsin eru samsett úr tveimur jafnstórum hlutum og tengd saman með yfirbyggðu skyggni.
Burðarvirki húsanna eru krosslímdar timbureiningar, forsniðnar og settar saman á verkstæði í byggð. Lárétt timburklæðning er látin veðrast og grána með tíð og tíma. Hliðar húsanna eru lokaðar á móti aðkomu, en gluggaveggir á andstæðri hlið opnast út á móti stórfenglegu sjávarútsýni.
Staðsetning hússins í landslaginu mótar bílastæði og upphafspunkt gönguleiða um eyjuna.
Landmótun og frágangur utanhúss var í höndum Landslags ehf.
Ljósmyndir: © Nanne Springer
_ _ _
Service Building for tourists at Dyrhólaey
2015
Two separate buildings are connected by a covered terrace. The structures are composed of Cross Laminated Tree elements and assembled as separate units off site. The main exterior cladding will form a natural grey hue limiting the impact on the natural surroundings. Entry side is spartan and devoid of openings, whilst the side towards the view is primarily glazed and open to a spectacular view towards the ocean.
Landscape by Landslag ehf.
Photographs: © Nanne Springer